Möttullinn
Möttullinn er tæplega 2900 km þykkt lag sem er á milli jarðskorpunnar og kjarnans. Hann er aðallega úr föstu efni. Möttulbergið er samt mjúkt og lint vegna mikils hita og þrýstings. Það hreyfist hægt vegna hitans sem kemur frá kjarnanum um möttulinn til yfirborðins með iðustraumum og möttulstrókum.